Golf

Kristján Þór úr leik eftir holukeppnina

Mynd / GSÍMYNDIR
Kristján Þór Einarsson, kylfingur úr Keili, tapaði í holukeppni gegn Portúgalanum Ricardo Melo Gouveia 4/3 í 64 manna úrslitum Opna breska áhugamannameistaramótsins í golfi í dag.

Kristján Þór kemst því ekki í 32 manna úrslit á einu sterkasta áhugamannamóti heims en það er að miklu að keppa á mótinu. Sigurvegarinn fær keppnisrétt á þremur af alls fjórum stórmótum hvers árs, Opna breska, Masters, og opna bandaríska meistaramótinu.

Kristján Þór lék samtals á einu höggi undir pari í höggleiknum sem fram fór á Royal Troon og Glasgow Gailes. Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum lék einnig á þessu móti en hann náði ekki að komast í gegnum niðurskurðinn fyrir holukeppnina.


Tengdar fréttir

Kristján 104 sætum fyrir ofan Ólaf eftir fyrsta daginn

Kristján Þór Einarsson úr Kili og Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum eru búnir með fyrsta hring á opna breska áhugamanna golfmótinu sem fram fer í Skotlandi en leikið er á bæði Glasgow Gailes Links og Royal Troon völlunum.

Kristján komst örugglega í gegnum niðurskurðinn

Kristján Þór Einarsson úr Kili spilaði mjög vel í gær á öðrum hring sínum á á opna breska áhugamannamótinu í golfi sem fer fram í Skotlandi. Kristján Þór var á pari eftir fyrsta daginn en lék annan hringinn á einu höggi undir pari. Hann er í 7. til 14. sæti þegar mótið er hálfnað. Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum var tveimur höggum frá því að ná niðurskurðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×