Svavar Hávarðsson veiddi í morgun fyrsta laxinn í Hrútafjarðará þetta árið. Svavar missti síðan annan lax. Aðstæður í ánni eru erfiðar.
"Swabsterinn að gera hið ómögulega. Fyrsti laxinn úr Hrútu í ár við afleitar aðstæður. Sólarglenna úr heiðum himni og sögulegt vatnsleysi. Og missti annan!!" skrifar Björgólfur, bróðir Svavars, á Facebook.
Svavar, sem er blaðamaður Veiðivísis og Fréttablaðsins, veiddi laxinn klukkan tíu í morgun í Hólmahyl. Fiskurinn var sex pund.
Ein þriggja punda bleikja veiddist Hrútafjarðará í gær og bættist í hóp fjögurra silunga sem komið hafa á land frá því áin var opnuð 1. júlí.
Að sögn Svavars segjast kunnugir við Hrútafjarðará aldrei hafa séð svo lítið vatn ánni eins og nú er. Meira síðar.
Uppfært 7.júlí: Nú hefur komið í ljós að fyrsti laxinn í Hrútafjarðará veiddist þann 2. júlí. Það gleymdist hins vegar að skrá hann í veiðibók. Lesa má meira hér.