Golf

Stór keppnishelgi í íslenska golfinu | 400 kylfingar taka þátt

Veðrið leikur við keppendur á Íslandsmóti +35 sem hófst í morgun í Vestmannaeyjum
Veðrið leikur við keppendur á Íslandsmóti +35 sem hófst í morgun í Vestmannaeyjum Sigurður Elvar
Þrjú stór mót fara fram á vegum Golfsambands Íslands um helgina og er samanlagður fjöldi keppenda um 400. Íslandsmót unglinga í höggleik fer fram á Kiðjabergsvelli og eru þar 150 kylfingar sem taka þátt í mótinu. Leiknir verða þrír hringir og hefst mótið á morgun og lýkur á sunnudag. Leikið verður á Áskorendamótaröðinni á Svarfhólsvelli á Selfossi og eru þar um 100 kylfingar skráðir til leiks.

Í Vestmannaeyjum fer fram Íslandsmót kylfinga 35 ára og eldri. Um 150 kylfingar eru þar skráðir til leiks og keppa um Íslandsmeistaratitilinn í nokkrum flokkum. Hægt er að fylgjast með gangi mála í öllum mótum í mótaskrá á golf.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×