Golf

Ísland í 3.-4. sæti að loknum fyrsta hring

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Íslensku strákarnir stóðu sig vel í dag.
Íslensku strákarnir stóðu sig vel í dag. Mynd / Ernir
Íslenska karlalandsliðið í golfi hefur lokið leik á fyrsta degi í undankeppni Evrópumóts áhugamanna sem leikin er á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði.

Englendingar leiða mótið á þremur höggum undir pari samanlagt en Hollendingar koma næstir á pari. Íslendingar deila 3. sæti með Portúgal á sex höggum yfir pari. Í 5. sæti koma Belgar á 13 höggum yfir pari.

Slóvakar, Rússar og Serbar eru þó nokkuð á eftir efstu liðum. Slóvakar eru á 25 höggum yfir pari, Rússar á 33 höggum yfir pari og Serbar á 55 höggum yfir pari.

Sex kylfingar eru í hverju liði og gilda fimm bestu skorin í hverju liði. Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús spiluðu best íslensku kylfinganna í dag en þeir komu í hús á 71 höggi eða pari vallarins.

Guðjón Henning Hilmarsson spilaði á einu höggi yfir pari og Kristján Þór Einarsson á tveimur yfir pari. Ólafur Björn Loftsson kom í hús á þremur höggum yfir pari.

Andri Þór Björnsson spilaði hringinn á 77 höggum eða sex höggum yfir pari. Hans skor er ekki tekið með í reikninginn líkt og slakasta skor hinna liðanna.

Leik verður framhaldið á morgun en lokahringurinn verður leikinn á laugardag. Þá kemur í ljós hvaða þrjár þjóðir tryggja sér þátttökurétt á Evrópumóti áhugamanna í Danmörku á næsta ári.



Nánar um gang mála á heimasíðu mótsins, sjá hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×