Golf

Valdís Þóra er Íslandsmeistari kvenna í golfi árið 2012

Óskar Ófeigur Jónson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Mynd/GSÍmyndir.net
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er Íslandsmeistari kvenna í golfi 2012 eftir gríðarlega spennandi keppni í kvennaflokki á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Valdís Þóra var að vinna titilinn í annað skiptið en hún varð líka Íslandsmeistari í Grafarholti fyrir þremur árum.

Valdís Þóra tryggði sér sigurinn með því leika 18. holuna á fimm höggum en hún lék holurnar 72 á einu höggi betur en þær Anna Sólveig Snorradóttir og Tinna Jóhannsdóttir sem eru báðar í Keili. Anna og Tinna voru báðar nærri því að setja niður pútt á lokaholunni sem hefði tryggt þeim umspil á móti Valdísi Þóru.

Spennan var mikil á lokaholunum og þá buðu stelpurnar líka upp á miklar sveiflur þar sem þær skiptust á um að ná forystunni. Tinna og Anna Sólveig þurfa nú að fara í umspil um annað sætið.

Anna Sólveig virtist vera að dragast aftur úr eftir að hafa tapað fjórum höggum á holum 10 til 14 en hún var þá komin fjórum höggum á eftir Valdísi og tveimur höggum á eftir Tinnu.

Það breyttist hinsvegar margt á næstu þremur holum. Valdís Þóra tapaði fjórum höggum á holum 15 og 16 og Tinna fékk skolla á bæði 16. og 17. holu. Anna Sólveig komst síðan í forystu fyrir lokaholuna með því að fá fugl á 17. holunni.

Þegar stelpurnar í lokahollinu mættu á 18. og síðustu holuna þá var Anna Sólveig samtals á tólf höggum yfir pari en bæði Valdís Þóra og Tinna voru á þrettán höggum yfir pari.

Valdís lék síðustu holuna á pari og tryggði sér með því sigur því hinar tvær töpuðu báðar höggum.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili lék best allra í dag eða á einu höggi yfir pari og tryggði sér með því fjórða sætið í mótinu á samtals 16 höggum yfir pari.

Lokastaðan í kvennaflokki:

1. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL +13

2. Anna Sólveig Snorradóttir, GK +14

2. Tinna Jóhannsdóttir, GK +14

4. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK +16

5. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR +17

6. Signý Arnórsdóttir, GK +22

7. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO +23

7. Guðrún Pétursdóttir, GR +23

9. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR +25

9. Karen Guðnadóttir, GS +25




Fleiri fréttir

Sjá meira


×