Golf

Kylfusveinn Kristins verður í dómarabúningnum í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristinn og Davíð.
Kristinn og Davíð. Mynd/seth
Körfuboltadómarinn Kristinn Óskarsson hefur slegið í gegn á fyrstu tveimur dögunum á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Kristinn hefur leikið fyrstu tvo hringina á einu höggi undir pari og er aðeins einu höggi á eftir efsta manni þegar keppni er hálfnuð.

Kristinn talaði um það eftir að hann lauk í gær að hann ætti kannski að mæta í dómarabúningnum í dag.

„Ég held að það séu allir að bíða eftir því að ég „springi" og ætli ég sé ekki einn af þeim líka. Ég er vanur því að umgangast toppíþróttamenn og þá er í dómarabúningnum og líður rosalega vel. Kannski verður þetta bara lausnin. Ég veit ekki hvort ég má það þar sem hann er allur í auglýsingum," sagði Kristinn í viðtali á Vísi í gær og hann ákvað síðan að fara millileiðina.

Kristinn hringdi í gær í Davíð Kr. Hreiðarsson, kollega sinn í dómarastéttinni, og fékk hann til að vera kylfusveinn sinn í dag. Davíð átti reyndar að mæta í vinnu hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði en fékk frí. Davíð mætti síðan á Strandarvöllinn í dómarabúningnum til þess að hjálpa á sínum manni.

Þriðji dagurinn á Íslandsmótinu í höggleik verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hér á Vísi og hefst útsendingin klukkan 15.00.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×