Golf

Sigmundur efstur á Hellu | gríðarleg spenna á toppnum

Sigmundur Einar Másson er efstur þegar keppni er hálfnuð á Íslandsmótinu í höggleik.
Sigmundur Einar Másson er efstur þegar keppni er hálfnuð á Íslandsmótinu í höggleik. seth
Sigmundur Einar Másson úr GKG er efstur þegar keppni er hálfnuð á Íslandsmótinu í höggleik í golfi á Strandarvelli á Hellu. Íslandsmeistarinn frá árinu 2006 er með eitt högg í forskot á Kristinn Óskarsson sem er úr GS. Sigmundur er samtals á 3 höggum undir pari en hann lék á 69 höggum í dag eða einu höggi undir pari. Kristinn, sem er betur þekktur sem körfuknattleiksdómari, hefur leikið báða hringina á 69 höggum. Rúnar Arnórsson úr Keili, sem var í efsta sæti eftir fyrsta keppnisdaginn er í þriðja sæti á einu höggi undir pari vallar.

Rúnar lék á 73 höggum í dag eða þremur höggum yfir pari en hann var á 66 höggum í gær. Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Axel Bóasson úr Keili, lék best allra í dag eða á 66 höggum eða fjórum höggum undir pari. Axel fékk alls 7 fugla á hringnum í dag en hann lék ekki vel á fyrsta keppnisdeginum eða 74 höggum. Axel er á pari vallar samtals líkt og Þórður Rafn Gissurarson úr GR sem lék á 72 höggum í dag.

GR-ingarnir Haraldur Franklín Magnús og Andri Þór Björnsson eru jafnir á einu höggi yfir pari í sjötta til sjöunda sæti. Haraldur lék á 74 höggum í dag eða +4 en hann var mun betri í gær þar sem hann lék á 67 höggum eða -3. Andri Þór var á pari vallar í dag en hann var á 71 höggi í gær eða +1.

Keppnin á Strandarvelli er mjög jöfn og það eru margir þekktir kylfingar sem eru ekki langt frá efsta sætinu.

Magnús Lárusson, GKj., er á +2 líkt og Örlygur Helgi Grímsson úr GV og heimamaðurinn Andri Már Óskarsson úr GHR. Andri Már lék vel í gær eða á 67 höggum en hann var á 75 höggum í dag.

Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnu, sem sigraði á Íslandsmótinu með eftirminnilegum hætti árið 2009, er í 11. -16. sæti á +3. Birgir Leifur Hafþórsson, fjórfaldur Íslandsmeistari úr GKG, er einnig á +3, líkt og Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG, Stefán Már Stefánsson, GR, Birgir Guðjónsson, GR, og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR.

Keppni á þriðja keppnisdegi hefst kl. 8.20 í fyrramálið en efstu keppendur í karlaflokknum hefja leik kl. 12.30.


Tengdar fréttir

Fimmtán ára gengið stendur sig vel á Hellu

Það vekur athygli að fimm kylfingar sem taka þátt á Íslandsmótinu í golfi eru aðeins fimmtán ára gamlir en þau er öll fædd árið 1997. Þrír drengir eru karlaflokknum og tvær stúlkur. Árangur þeirra er með ágætum og það er greinilegt að ný kynslóð afrekskylfinga bíður handan við hornið.

Erfiðar aðstæður á Strandarvelli | Axel byrjar með látum

Það blés hraustlega á kylfingina sem hófu leik snemma í morgun á Strandarvelli á Hellu þegar annar keppnisdagur af alls fjórum hófst á Íslandsmótinu í höggleik. Síðustu ráshóparnir í karlaflokknum fara ekki út fyrr en kl. 16 í dag en nokkrir af þeim sem voru í efstu sætunum eftir fyrsta daginn hafa nú þegar lokið leik. Haraldur Franklín Magnús úr GR erá meðal þeirra en hann lék á 74 höggum í dag eða +4 en hann var með næst besta skor gærdagsins 67 högg eða -3.

Sigmundur Einar ætlar sér að landa titlinum á Hellu

Sigmundur Einar Másson úr GKG er til alls líklegur á lokadögunum tveimur á Íslandsmótinu í höggleik. Sigmundur, sem sigraði á Íslandsmótinu árið 2006, lék á 69 höggum í dag eða -1 og er hann samtals á -3 og er hann þessa stundina í efsta sæti mótsins.

Æfingalaus körfuboltadómari stimplaði sig inn í toppbaráttuna

Kristinn Óskarsson hefur komið skemmtilega á óvart á fyrstu tveimur keppnisdögunum á Íslandsmótinu í höggleik í golfi. Kristinn, sem er betur þekktur sem einn reyndasti körfuknattleiksdómari landsins er þegar þetta er skrifað í efsta sæti mótsins ásamt fleiri kylfingum. Kristinn, sem leikur fyrir GS, er með 1,3 í forgjöf, hefur leikið báða hringina á Strandarvelli á Hellu á 1 höggi undir pari vallar.

Hnífjafnt á Hellu | Anna og Valdís deila efsta sætinu

Anna Sólveig Snorradóttir, 17 ára kylfingur úr Keili, og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni Akranesi deila efsta sætinu þegar keppni er hálfnuð á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Anna Sólveig og Valdís eru samtals á 6 höggum yfir pari vallar en tveimur höggum þar á eftir kemur Eygló Myrra Óskarsdóttir úr GO.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×