Golf

Sigmundur Einar ætlar sér að landa titlinum á Hellu

Sigurður Elvar Þórólfsson á Strandarvelli skrifar
Sigmundur Einar Mársson slær hér annað höggið á 3. braut.
Sigmundur Einar Mársson slær hér annað höggið á 3. braut. seth
Sigmundur Einar Másson úr GKG er til alls líklegur á lokadögunum tveimur á Íslandsmótinu í höggleik. Sigmundur, sem sigraði á Íslandsmótinu árið 2006, lék á 69 höggum í dag eða -1 og er hann samtals á -3 og er hann þessa stundina í efsta sæti mótsins.

Sigmundur glímdi við erfið bakmeiðsli s.l. vetur en hann er allur að koma til og markmiðið er einfalt. „Ég ætla bara að vinna þetta, það kemur ekkert annað til greina. Ég hef breytt æfingamynstrinu hjá mér, ég eyði ekki eins miklum tíma í þetta og áður en reyni bara að gera hlutina mjög vel. Upphafshöggin hafa verið frábær á þessu móti og á meðan ég er að hitta brautir og flatir þá er allt hægt," bætti hann við.

Sigmundur hafði ekki hugmynd um hvar hann var í röð keppenda þegar viðtalið var tekið. „Er ég efstur, gaman að vita það, en maður veit alveg hvernig svona mót þróast, það á margt eftir að gerast á næstu tveimur dögum," sagði Sigmundur.


Tengdar fréttir

Fimmtán ára gengið stendur sig vel á Hellu

Það vekur athygli að fimm kylfingar sem taka þátt á Íslandsmótinu í golfi eru aðeins fimmtán ára gamlir en þau er öll fædd árið 1997. Þrír drengir eru karlaflokknum og tvær stúlkur. Árangur þeirra er með ágætum og það er greinilegt að ný kynslóð afrekskylfinga bíður handan við hornið.

Axel stimplaði sig inn í baráttuna með frábærum hring

Axel Bóasson, Íslandsmeistari í höggleik, lét verkin tala í dag á öðrum keppnisdegi Íslandsmótsins þar sem hann lék á 66 höggum eða 4 höggum undir pari vallar. Axel var í miklu stuði í dag og fékk hann alls sjö fugla á hringnum. Axel er samtals á pari Strandarvallar en hann hóf titilvörnina frekar illa í gær þar sem hann lék á 74 höggum.

Erfiðar aðstæður á Strandarvelli | Axel byrjar með látum

Það blés hraustlega á kylfingina sem hófu leik snemma í morgun á Strandarvelli á Hellu þegar annar keppnisdagur af alls fjórum hófst á Íslandsmótinu í höggleik. Síðustu ráshóparnir í karlaflokknum fara ekki út fyrr en kl. 16 í dag en nokkrir af þeim sem voru í efstu sætunum eftir fyrsta daginn hafa nú þegar lokið leik. Haraldur Franklín Magnús úr GR erá meðal þeirra en hann lék á 74 höggum í dag eða +4 en hann var með næst besta skor gærdagsins 67 högg eða -3.

Keppni hafin að nýju á Strandarvelli | myndasyrpa

Annar keppnisdagur af alls fjórum fer fram í dag á Íslandsmótinu í höggleik á Eimskipsmótaröðinni en leikið er á Strandarvelli á Hellu. Rúnar Arnórsson úr Keili er með eitt högg í forskot í karlaflokknum en hann lék á 64 höggum í gær eða -4. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni er efst í kvennaflokknum en hún lék á 71 höggi eða +1.

Æfingalaus körfuboltadómari stimplaði sig inn í toppbaráttuna

Kristinn Óskarsson hefur komið skemmtilega á óvart á fyrstu tveimur keppnisdögunum á Íslandsmótinu í höggleik í golfi. Kristinn, sem er betur þekktur sem einn reyndasti körfuknattleiksdómari landsins er þegar þetta er skrifað í efsta sæti mótsins ásamt fleiri kylfingum. Kristinn, sem leikur fyrir GS, er með 1,3 í forgjöf, hefur leikið báða hringina á Strandarvelli á Hellu á 1 höggi undir pari vallar.

Hnífjafnt á Hellu | Anna og Valdís deila efsta sætinu

Anna Sólveig Snorradóttir, 17 ára kylfingur úr Keili, og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni Akranesi deila efsta sætinu þegar keppni er hálfnuð á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Anna Sólveig og Valdís eru samtals á 6 höggum yfir pari vallar en tveimur höggum þar á eftir kemur Eygló Myrra Óskarsdóttir úr GO.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×