Golf

Ólafía Þórunn og Signý meðal efstu í Silkeborg

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafía Þórunn
Ólafía Þórunn Mynd/Gsimyndir.net
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR og Signý Arnórsdóttir GK komust báðar í gegnum niðurskurðinn á Dilac-mótinu en keppt er í Silkeborg í Danmörku. Berglind Björnsdóttir GR náði ekki í gegnum niðurskurðinn.

Ólafía Þórunn er í 5.-6. sæti á 13 höggum yfir pari en hún lék þriðja hringinn á 81 höggi. Signý lék þriðja hringinn á 85 höggum og er í 11.-12. sæti á 22 höggum yfir pari.

Nicole Broch Larsen frá Danmörku leiðir mótið með níu högga forskot á þá kylfinga sem næstir koma. Lokahringurinn verður leikinn í dag.



Hér má fylgjast með skori keppenda.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×