Golf

Guðrún Brá og Ragnar Már leiða fyrir lokadaginn á Íslandsmóti unglinga

Guðrún Brá er í góðum málum fyrir lokahringinn á Kiðjabergsvelli.
Guðrún Brá er í góðum málum fyrir lokahringinn á Kiðjabergsvelli. Mynd/GSÍ
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK og Ragnar Már Garðarsson úr GKG hafa forystu fyrir lokahringinn á Íslandsmóti unglinga í höggleik en leikið er á Kiðjabergsvelli. Keppendur voru ræstir út snemma í morgun vegna slæmrar veðurspár og náðu flestir keppendur að ljúka leik við sómasamleg veðurskilyrði.

Í stúlknaflokki 17-18 ára leiðir Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK en hún lék á 76 höggum í dag eða 5 höggum yfir pari. Guðrún Brá hefur því leikið hringina tvo á 145 höggum eða 3 yfir pari. Önnur er Anna Sólveig Snorradóttir, einnig úr GK, á 148 höggum eða 6 yfir pari. Í þriðja sæti er Guðrún Pétursdóttir GR á 149 höggum eða 7 yfir pari.

Í piltaflokki 17-18 ára er það Ragnar Már Garðarsson GKG sem hefur forystu. Hann lék í dag á 71 höggi eða á pari vallarins. Ragnar Már er samtals á 145 höggum og leiðir með 3 höggum. Í öðru sæti er Bjarki Pétursson GB. Hann lék á 71 höggi eða á pari í dag. Í þriðja sæti er Benedikt Árni Harðarson GK en hann lék á 76 höggum í dag.

Í telpnaflokki leiðir Ragnhildur Kristinsdóttir GR og hefur hún sex högga forskot á Söru Margréti Hinriksdóttur GK sem er önnur. Í þriðja sæti er Birta Dís Jónsdóttir frá Golfklúbbnum Hamri Dalvík. Í drengjaflokki er það Birgir Björn Magnússon GK forystu, hann lék í dag á 70 höggum eða einu höggi undir pari en drengirnir léku við erfiðar aðstæður síðustu holurnar í rigningu og roki. Í öðru sæti er Gísli Sveinbergsson GK og í þriðja sæti er Elís Rúnar Elísson GKJ.

Hjá stelpum 14 ára og yngri leiðir Saga Traustadóttir GR á 163 höggum. Í öðru sæti, einnig úr Golfklúbbi Reykjavíkur, er Eva Karen Björnsdóttir og í því þriðja er Þóra Kristín Ragnarsdóttir GK. Í flokki stráka 14 ára og yngri er það Henning Darri Þórðarson GK sem leiðir en hann lék í dag á 78 höggum. Í öðru sæti er Hvergerðingurinn ungi Fannar Ingi Steingrímsson GHG sem lék á 76 höggum. Í þriðja sæti er Arnór Snær Guðmundsson úr Golfklúbbnum Hamri Dalvík

Á morgun verður ræst út frá kl 7:30 og er áætlað að Íslandsmeistarar í flokkum 17-18 ára pila og stúlkna ásamt telpum 15-16 ára verði krýndir um kl 14:30. Í öðrum flokkum fer krýning fram um klukkan 19:00.

Staðan í öllum flokkum

Stúlkur 17-18 ára

1 Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 69/ 76/ 145

2 Anna Sólveig Snorradóttir GK, 73/ 75/ 148

3 Guðrún Pétursdóttir GR 73/ 76/ 149

Piltar 17-18 ára

1 Ragnar Már Garðarsson, GKG 74/ 71/ 145

2 Bjarki Pétursson, GB 78/ 71/ 149

3 Benedikt Árni Harðarson, GK 73/ 76 / 149

Telpur 15-16 ára

1 Ragnhildur Kristinsdóttir GR, 77 / 78/ 155

2 Sara Margrét Hinriksdóttir GK, 81/ 80/ 161

3 Birta Dís Jónsdóttir GHD, 82 / 83/ 165

Drengir 15-16 ára

1 Birgir Björn Magnússon GK, 73/ 70/ 143

2 Gísli Sveinbergsson GK, 73/ 71/ 144

3 Elís Rúnar Elísson GKJ/ 70/ 79/ 149

Stelpur 14 ára og yngri

1 Saga Traustadóttir GR, 85/ 78/ 163

2 Eva Karen Björnsdóttir GR, 84/ 85/ 169

3 Þóra Kristín Ragnarsdóttir GK, 86/ 86/ 172

Strákar 14 ára og yngri

1 Henning Darri Þórðarson GK, 70/ 78/ 148

2 Fannar Ingi Steingrímsson GHG, 75/ 76/ 151

3 Arnór Snær Guðmundsson GHD, 80/ 73/ 153




Fleiri fréttir

Sjá meira


×