Golf

Ólafía og Ólafur unnu á Kiðjabergsvelli

Valur Jónatansson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum. Mynd/GSÍmyndir.net
Ólafur Björn Loftsson úr NK og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR sigruðu í Securitas mótinu, sem er hluti af Eimskipsmótaröðinni, á Kiðjabergsvelli í dag. Keppnin var jöfn og spennandi í báðum flokkum og réðust úrslit ekki fyrr en á lokaholunum. Þetta var næst síðasta mót sumarsins á Eimskipsmótaröðinni. Lokamótið verður í Grafarholti eftir tvær vikur.

Ólafur Björn lék hringina þrjá á samtals pari og tryggði sér eins höggs sigur með glæsilegu pútti fyrir fugli á lokaholunni. Einar Haukur Óskarsson úr GK og Sigurþór Jónsson úr GOS voru jafnir í öðru sæti á samtals einu höggi yfir pari. Hlynur Geir Hjartarson úr GOS varð í fjórða sæti á samtals 6 höggum yfir pari.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lék lokahringinn á 71 höggi, eða pari vallar. Hún var tveimur höggum á undan Signý Arnórsdóttur úr GK sem lék á 73 höggum í dag. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK, sem var með forystu eftir tvo fyrstu hringina, lék illa í dag – kom inn á 79 höggum og deildi þriðja sæti með Ingunni Einarsdóttur úr GKG.

Lokastaðan í karlaflokki:

1 Ólafur Björn Loftsson NK 70-72-71=213

2 Sigurþór Jónsson GOS 70-71-73=214

3 Einar Haukur Óskarsson GK 69-73-72=214

4. Hlynur Geir Hjartarson GOS 72-75-72=219

5.-6 Kristján Þór Einarsson GK 74-75-71=220

5.-6 Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR 71-75-74=220

7.-9. Magnús Björn Sigurðsson GL 76-73-72=221

7.-9 Guðjón Henning Hilmarsson GKG 74-71-76=221

7.-9 Andri Þór Björnsson GR 68-75-78=221

10. Rafn Stefán Rafnsson GO 75-77-70=222

Lokastaðan í kvennaflokki:

1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR 77-76-71=224

2. Signý Arnórsdóttir GK 80-73-73=226

3.-4. Ingunn Einarsdóttir GKG 76-77-75=228

3.-4. Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 72-77-79=228

5. Karen Guðnadóttir GS 74-83-73=230

6. Þórdís Geirsdóttir GK 79-79-76=234

7. Heiða Guðnadóttir GKJ 79-79-77=235

8. Ingunn Gunnarsdóttir GKG 75-81-81=237

9.-10. Hansína Þorkelsdóttir GKG 87-86-77=250

9.-10. Hildur Kristín Þorvarðardóttir GR 82-86-82=250




Fleiri fréttir

Sjá meira


×