Golf

Arnar Snær með vallarmet á Kiðjabergsvelli – 66 högg

Valur B. Jónatansson á Kiðjabergsvelli skrifar
Arnar Snær Hákonarson úr GR setti nýtt og glæsilegt vallarmet á Kiðjabergsvelli í dag er hann lék á 66 höggum af hvítum teigum, eða 5 höggum undir pari vallar, á fyrsta hring á Eimskipsmótaröðinni. Hann bætti gamla vallarmetið um tvö högg, en það var í eigu Birgis Leifs Hafþórssonar og Örvars Samúelssonar. Arnar Snær lék skollalausan hring - fékk 5 fugla og 13 pör og var þetta jafnframt besti hringurinn hans á ferlinum.

Andri Þór Björnsson úr GR lék einnig gott golf í dag, kom inn á 68 höggum eða 3 höggum undir pari vallar sem er jöfnun á gamla vallametinu. Hann var með sex fulga á hringnum í dag, þar af 5 á fyrri níu.

„Þetta gekk ótrúlega vel hjá mér í dag. Aðstæður voru líka mjög góðar og völlurinn í fínu standi. Þá vorum við heppnir að það fór að blása þegar við vorum búnir með 13. braut og því fengum við meðvind síðustu holurnar. Ég hefði getað fengið fugl á16. holu þar sem ég rétt missti stutt pútt fyrir fugli, en náði þó að redda góðu pari á 17. og 18. braut," sagði Arnar Snær glaður í bragði eftir draumahringinn.

Arnar Snær sagði þetta skor í dag gefa honum aukið sjálfstraust fyrir næstu tvo hringi, en hann hefur aldrei náð að sigra á Eimskipsmótaröðinni. Þá er hann að undirbúa sig fyrir úrtökumót fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer í Þýskalandi í næsta mánuði. „Það er gaman að sjá að ég get skorað svona vel. Ég er búinn að æfa mjög vel og hef verið að bíða eftir þessu," sagði Arnar Snær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×