Golf

Úlfar landsliðsþjálfari: Mikið afrek hjá Axel

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Axel Bóasson.
Axel Bóasson. Mynd/GSÍmyndir.net
Axel Bóasson náði frábærum árangri i dag þegar hann hafnaði i 8. til 12. sæti á Evrópumóti einstaklinga á Írlandi. Axel lék lokadaginn á 70 höggum og var i heildina á fimm höggum undir pari. Axel jafnaði með þessu besta árangur Íslendings á þessu sterka áhugamannamóti en Ólafur Mar Sigurðsson hafnaði einnig i 8. sæti á þessu sama móti árið 2002.

„Það er mikið afrek hjá Axel að ná þessum árangri. Þetta var baráttuhringur og mun erfiðra að halda boltanum i leik og pútta, í þessum vindi, á jafn hröðum flotum og um var að ræða á Montgomerie vellinum," sagði Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari í fréttatilkynningu frá Golfsambandi Íslands.

„Eftir að vera kominn tvo yfir eftir tvær holur þá sýndi Axel mikinn karakter að klára hringinn á tveimur höggum undir pari. Golfið var eðlilega ekki jafn áferðarfallegt og daginn áður, enda aðstæður mun erfiðari, en hann leysti sig alltaf vel úr vandræðum þegar hann þurfti þess. Síðan fara menn ótrúlega langt a þolinmæði og jákvæðni þegar aðstæður eru krefjandi. Þessi árangur ætti að vera Axel og öðrum íslenskum afrekskylfingum mikil hvatning og sýna að við getum komið okkur i fremstu röð," sagði Úlfar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×