Golf

Sveitakeppnin í golfi fer fram um helgina - GR á titla að verja

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haraldur Franklín Magnús á möguleika á því að vinna þriðja Íslandsmeistaratitil sinn í sumar.
Haraldur Franklín Magnús á möguleika á því að vinna þriðja Íslandsmeistaratitil sinn í sumar. Mynd/GSÍmyndir.net
Sveitakeppni Golfsambands Íslands í karla- og kvennaflokki fer fram um helgina og verður leikið í fimm deildum karla og tveimur deildum kvenna. Í karlaflokki verður leikin holukeppni í 1.- 4. deild en í fimmtu deild er leikinn höggleikur laugardag og sunnudag. Í kvennaflokki verður leikin holukeppni í 1. deild en 2. deildin er höggleikur.

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur unnið tvöfalt undanfarin tvö ár en karlkylfingarnir í GR eiga möguleika á að bæta sigri í Sveitakeppninni við Íslandsmeistaratitla í höggleik og Holukeppni en þar fagnaði GR-ingurinn Haraldur Franklín Magnús sigri í báðum mótum.

Inn á síðu sveitakeppnanna er að finna allar upplýsingar um liðin, riðlana ásamt úrslitum leikja. En það má nálgast þær upplýsingar með því að smella hér.



Sveitakeppni GSÍ 2012:

1. deild karla verður leikinn á Hólmsvelli hjá Golfklúbbi Suðurnesja

2. deild karla er á Hamarsvelli hjá Golfklúbbnum í Borgarnesi

3. deild karla er á Öndverðarnesvelli hjá Golfklúbbi Öndverðarnes

4. deild karla er á Gufudalsvelli hjá Golfklúbbnum í Hveragerði

5. deild karla er á Víkurvelli hjá Golfklúbbnum Vík í Mýrdal (Höggleikur)

1. deild kvenna er á Garðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur

2. deild kvenna er á Skeggjabrekkuvelli hjá Golfklúbbi Ólafsfjarðar (Höggleikur)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×