Golf

Úlfar búinn að velja þá sex kylfinga sem fara á HM í Tyrklandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er í landsliðinu sem keppir í Tyrklandi.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er í landsliðinu sem keppir í Tyrklandi. Mynd/GVA
Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari í golfi hefur valið samkvæmt afreksstefnu Golfsambandsins sex kylfinga til að leika fyrir Íslands hönd á HM karla og kvenna. Heimsmeistaramótið verður haldið verður í Tyrklandi í haust en leikið verður á Gloria Golf Resort (Old og New course) í Antalya í Tyrklandi.

HM kvenna Espirito Santo Trophy fer fram dagana 27.-30. september, liðið skipa þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR (efst á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar), Valdís Þóra Jónsdóttir GL (efst á heimslista áhugamanna) og Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK (Val landsliðsþjálfara).

HM karla Eisenhower Trophy fer fram dagana 4.-7. október, liðið skipa þeir Haraldur Franklín Magnús GR (efstur á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar), Axel Bóasson GK (efstur á heimslista áhugamanna), heimslisti áhugamanna og Rúnar Arnórsson GK (Val landsliðsþjálfara).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×