Golf

Garcia gaf eftir og Watney fagnað sigri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Watney var í góðum gír í Farmingdale um helgina.
Watney var í góðum gír í Farmingdale um helgina. Nordicphotos/Getty
Bandaríski kylfingurinn Nick Watney landaði sigri á Barclays-mótinu í New York fylki um helgina. Watney lyfti sér upp í efsta sæti stigalista FedEx-bikarsins og á möguleika á 10 milljóna dollara verðlaunafé á lokamótinu í næsta mánuði.

Watney háði harða baráttu við Spánverjann Sergio Garcia á mótinu. Kapparnir voru jafnir að loknum tveimur fyrstu hringjunum en Garcia hafði tveggja högga forskot fyrir lokahringinn í Farmingdale.

Garcia fór illa að ráði sínu á lokahringnum. Spánverjinn spilaði á fjórum höggum yfir pari og hafnaði í þriðja sæti ásamt Dustin Johnson.

Watney setti hins vegar niður þriggja metra pútt á lokaholunni, nældi í fugl og skilaði sér í hús á tveimur höggum undir pari samanlagt. Næstur kom Brandt Snedeker á einu höggi yfir pari.

Talið er að möguleiki Watney á sæti í Ryder-liði Bandaríkjanna hafi aukist til muna með sigrinum. Fyrirliðinn David Love tilkynnir í næstu viku hvaða fjórir kylfingar hljóta náð hans um síðustu lausu sætin í liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×