Golf

Garcia leiðir í New York

Það fór vel á með þeim Garcia og Watney eftir hringinn í gær.
Það fór vel á með þeim Garcia og Watney eftir hringinn í gær.
Spánverjinn Sergio Garcia hefur tveggja högga forskot á Barclay's mótinu í New York þegar einn hringur er eftir.

Annar er Nick Watney en þeir voru jafnir eftir fyrstu tvo dagana. Tiger Woods er sex höggum á eftir Garcia.

Garcia virðist hafa fundið sitt gamla form enda að leika afar vel um þessar mundir. Hann vann Wyndham-meistaramótið í síðustu viku og gæti nú náð öðrum sigrinum í röð.

"Ég vil bara fara í sturtu upp á hóteli og slaka á. Ég ætla svo bara að reyna að spila minn leik á lokadeginum. Ég hef trú á því sem ég er að gera núna og það væri frábært ef ég næði aftur sigri," sagði Garcia.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×