Sigur Rós fékk nokkra kvikmyndagerðarmenn til að gera myndbönd við diskinn. Hver þeirra fékk væna upphæð til verksins, mátti velja sér lag og gerði svo myndband án nokkurs samráðs við Sigur Rósar menn. Myndböndin hafa verið að birtast í sumar.
Einn þáttur í þessu verkefni er að fá almenning til að senda inn myndbönd við lögin. Eitt myndband verður valið og endar sem opinbert myndband við lag af disknum. Sigurvegarinn fær einnig 5 þúsund dollara í verðlaunafé, eða um 600 þúsund krónur. Nú fer hver að verða síðastur til að senda inn sitt myndband því fresturinn rennur út eftir tíu daga.
Orri Páll Dýrason í Sigur Rós segir að það hafi verið sönn ánægja að fylgjast með myndböndunum og alltaf jafn spennandi og óvænt að sjá hvernig hver leikstjóri upplifir tónlist hljómsveitarinnar.
Hér að neðan má sjá nýjasta myndbandið úr seríunni.
Sigur Rós: Dauðalogn from Sigur Rós Valtari Mystery Films on Vimeo.