Lífið

Vala sagði ein­fald­lega „fokk jú“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vala Matt fór á kostum í þættinum.
Vala Matt fór á kostum í þættinum.

Þau Sindri Sindrason, Sólmundur Hólm og Vala Matt mættu í settið til Björns Braga Arnarsonar í sérstökum afmælisþætti Sýnar í gær.

Þá var haldið upp á fjörutíu ára afmæli sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar sem áður hét Stöð 2.

Sindri var ánægður með sófann sem boðið var upp á þar sem hann náði með lappirnar í gólfið, eitthvað sem hann lendir ekki alltaf í. Vala Matt hefur í raun verið á Stöð 2 og seinna Sýn frá upphafi.

„Gleði og gaman eru búin að vera rauði þráðurinn alveg frá því að við byrjuðum,“ segir Vala.

Árið 1986 þótti það ekki til siðs að hlæja í sjónvarpi.

„Enda gerðum við svo margt sem RÚV hafði aldrei gert og við byltum í rauninni sjónvarpslandslaginu á Íslandi. Svo þótti það heldur ekki til siðs að halda á myndavélinni. Mér var sagt að maður ætti að setja myndavélina á þrífót og taka síðan viðtalið, annars væri þetta eins og þú værir að njósna um fólk. Mín viðbrögð voru þá bara, fokk jú,“ segir Vala og uppskar mikinn hlátur í salnum en hér að neðan má sjá spjall Björns við þetta skemmtilega fólk.

Klippa: Vala sagði einfaldlega „fokk jú“

Hér að neðan má einnig sjá þáttinn í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.