Golf

Afrekskylfingar berjast um stigameistaratitla á Síma-mótinu

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Hlynur Geir Hjartarson varð stigameistari á Eimskipsmótaröðinni árið 2010 og einnig árið 2008.
Hlynur Geir Hjartarson varð stigameistari á Eimskipsmótaröðinni árið 2010 og einnig árið 2008.
Lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni í golfi, Síma-mótið, fer fram á Grafarholtsvelli í Reykjavík um helgina og hefst keppni á laugardaginn. Leiknar verða 54 holur í mótinu, þar af 36 holur á laugardeginum. Góð þátttaka er í mótinu og 11 af alls 20 efstu á stigalistanum í karlaflokki eru á meðal keppenda. Hámarksfjöldi keppenda er 84 kylfingar og hefur myndast biðlisti inn í mótið hjá körlunum.

Hörð barátta er um stigameistaratitilinn hjá bæði körlum og konum. Haraldur Franklín Magnús úr GR, tvöfaldur Íslandsmeistari á þessu tímabili, er í efsta sæti á stigalista karla með 5266,43 stig. Haraldur verður hins vegar ekki með í mótinu um helgina en hann hélt nýverið til náms í Bandaríkjunum.

Hlynur Geir Hjartarson, úr GOS, er með pálmann í höndunum í karlaflokki með 5157,50 stig. Andri Þór Björnsson úr GR er þriðji en hann verður ekki með um helgina. Þórður Rafn Gissurarson úr GR kemur í 4. sæti og hann ásamt Rúnari Arnórssyni úr GK eru þeir einu sem geta náð Hlyni að stigum.

Í kvennaflokki verður baráttan um stigameistaratitilinn á milli Signýjar Arnórsdóttur og Guðrúnar Brá Björgvinsdóttur, báðar úr Keili. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er í efsta sæti með 6002,50 stig en hún verður ekki með í lokamótinu þar sem hún hefur haldið til Bandaríkjanna í nám. Signý er önnur með 5892,50 stig en Guðrún Brá í þriðja sæti með 5241,25 stig. Fari Signý með sigur af hólmi í Grafarholti þar verður hún einnig stigameistari.

Lifandi skor verður frá Síma mótinu á Grafarholtsvelli um helgina og skor kylfinga skrásett á þriggja holu fresti.

Stigalisti karla á Eimskipsmótaröðinni:

1. Haraldur Franklín Magnús, GR 5266.43 stig

2. Hlynur Geir Hjartarson, GOS, 5157.50 stig

3. Andri Þór Björnsson, GR, 4307.50 stig

4. Þórður Rafn Gissurarson, GR, 4282.50 stig

5. Rúnar Arnórsson, GK 3882.50 stig

Stigalisti kvenna á Eimskipsmótaröðinni:

1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 6002.50 stig

2. Signý Arnórsdóttir, GK 5892.50 stig

3. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 5241.25 stig

4. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 4118.75 stig

5. Tinna Jóhannsdóttir, GK 3975.00 stig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×