Golf

Reykjavíkurúrvalið sigraði örugglega

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurlið Reykjavíkurúrvalsins.
Sigurlið Reykjavíkurúrvalsins. Mynd/gsimyndir.net
Úrslit réðust í KMPG-bikarnum í golfi en þar mættust úrvalslið höfuðborgarinnar annars vegar og landsbyggðarinnar hins vegar.

Sigurinn var sannfærandi en Reykjavíkurúrvalið fékk alls sautján vinninga gegn sjö hjá landsbyggðinni.

Þriðja og síðasta umferðin fór fram í dag og þá var keppt í tvímenningi. Höfuðborgarliðið fékk átta vinninga en landsbyggðin fjóra.

Í flokki 55 ára eldri hafði Reykjavíkurúrvalið einnig öruggan sigur með 22 vinningum gegn tveimur. Höfuðborgin fékk fullt hús stiga í tvímenningnum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×