Golf

Birgir Leifur komst í gegnum niðurskurðinn í Moskvu

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson komst í dag í gegnum niðurskurðinn á móti í Áskorendamótaröðinni en mótið fer fram í Moskvu.

Birgir Leifur er samtals á fjórum höggum yfir pari eftir fyrstu tvo keppnisdagana. Fyrri hringinn lék hann á einu yfir pari en það gekk aðeins verr í dag þar sem hann kom í hús á þrem höggum yfir pari.

Sá sem leiðir mótið er á átta höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×