Golf

Tinna hafði sigur í Grafarholtinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tinna Jóhannsdóttir
Tinna Jóhannsdóttir Mynd/GSÍmyndir.net
Tinna Jóhannsdóttir úr Keili sigraði kvennaflokki á Símamótinu í golfi en keppt var í Grafarholti. Mótið var það síðasta á Eimskipsmótaröðinni í sumar.

Tinna spilaði hringinn í dag á sjö höggum yfir pari og lauk leik samanlagt á fimmtán höggum yfir pari. Heimakonan Ragnhildur Kristinsdóttir kom næst á nítján höggum yfir pari og þriðja var Signý Arnórsdóttir á tuttugu höggum yfir pari samanlagt.

Efstu konur

1. Tinna Jóhannsdóttir, GK +15

2. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR +19

3. Signý Arnórsdóttir, GK +20

4. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK +22

5. Karen Guðnadóttir, GS +31

6. Guðrún Pétursdóttir, GR +33

7. Heiða Guðnadóttir, GKJ +35

8. Ingunn Einarsdóttir, GKG +39

9. Sara Margrét Hinriksdóttir, GK +42

10. Hansína Þorkelsdóttir, GKG +43




Fleiri fréttir

Sjá meira


×