Allt á einum stað 17. september 2012 11:52 Það er tímafrekt að versla á mörgum stöðum. Hjá kerfi ehf. fæst allt á einum stað. mynd/vilhelm
Guðmundur Sigurðsson ætti að vera Íslendingum vel kunnur eftir að hafa rekið fyrirtækið Vogabæ í 27 ár. Vogabæ seldi hann í ársbyrjun 2008. Í framhaldinu keyptu hann og sonur hans Kerfi ehf. sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu rekstrarvara til fyrirtækja. "Við seljum og leigjum kaffi- og vatnsvélar í öllum stærðum og gerðum og þjónustum þær með allt sem til þarf; vatnsbrúsa, kolsýruhylki, fjölbreytt úrval af kaffi og kaffibaunum auk þess að lagfæra vélarnar ef eitthvað kemur upp á," segir Guðmundur. Bæði er mögulegt að kaupa vélar hjá Kerfi og leigja. Ef um leigu er að ræða er undirritaður þjónustusamningur þar sem upplýsingar um verð og innifalda þjónustu koma fram. "Þá er greitt ákveðið mánaðargjald sem felur í sér leigu á vél og nauðsynlega þjónustu við hana. Einnig er hægt að bæta í samninginn annarri þjónustu, svo sem kaupum á kaffi, glösum, pappír og fleiru. Okkar meginmarkmið er að veita skjóta og góða þjónustu. Ef hringt er fyrir hádegi með erindi eða pöntun vegna vélar, þjónustum við hana samdægurs. Við erum að keppa við stóra aðila og teljum okkar veita betri þjónustu. Það er okkar aðalsmerki." Kerfi ehf. leigir einnig út til skamms tíma sem er einkar hentugt fyrir einstaklinga sem eru að halda veislur eða viðburði og vantar kaffivélar eða annað til þess. Það er tímafrekt að kaupa rekstrarvörur á mörgum stöðum fyrir fyrirtæki. Með því að eiga viðskipti við Kerfi ehf. leysist það á augabragði. "Við erum með allt sem þarf. Hvort sem það eru einnota glös, eldhúspappír, sápuskammtarar, mjólk, prentarapappír, kakóduft eða hvað sem er fyrir reksturinn, þá eigum við það til." Á heimasíðu Kerfa ehf. er vefverslun með myndum og verði á öllum vörum. Með einum smelli er hægt að panta vörur sem svo eru sendar á áfangastað. Sjá nánari upplýsingar um Kerfi ehf. á kerfi.is.
Mest lesið Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Fleiri fréttir Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent