Golf

Andrew Bretaprins afhenti Ragnari bikarinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragnar Már Garðarsson.
Ragnar Már Garðarsson. MyndGolfsamband Íslands
Ragnar Már Garðarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar vann í dag Duke of York golfmótið sem fór fram á Royal Troon vellinum í Skotlandi. Ragnar Már hafði betur gegn Englendingnum Max Orrin og Katja Pogacar frá Slóveníu í bráðabana um sigurinn en þeir léku allir á 225 höggum eða níu höggum yfir pari.

Ragnar átti besta hring dagsins en hann lék á 72 höggum eða á pari Royal Troon vallarins. Það var frábært skor enda voru aðstæður í dag mjög erfiðar, mikill vindur og væta inn á milli. Ragnar fékk frábæran fugl á 17. holunni en þá vippaði hann niður öðru höggi sínu fyrir fugli. Hann var í sjöunda sæti fyrir lokahringinn en náði að vinna sig upp töfluna með góðum lokahring og hafði að lokum betur eftir þriggja holu bráðabana.

Það er mikið afrek að vinna Duke of York golfmótið en það er eitt sterkasta unglingamót sem haldið er á hverju ári. Í mótinu fá aðeins landsmeistarar unglinga keppnisrétt og því slá því föstu að efnilegustu kylfingar Evrópu og víðar leiki í mótinu.

Þetta er í annað sinn á þremur árum sem íslenskur kylfingur stendur uppi sem sigurvegari í Duke of York mótinu. Fyrir tveimur árum sigraði Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR í þessu sama móti og verður það að teljast magnaður áfangi fyrir íslenskt golf að eiga nú tvo sigurvegara með svo skömmu millibili. Andrew Bretaprins stendur að mótinu og veitti Ragnari Má bikarinn í mótslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×