Golf

Enn einn sigurinn hjá McIllroy

McIllroy með bikarana sem hann fékk.
McIllroy með bikarana sem hann fékk.
Kylfingurinn Rory McIllroy er sjóðheitur þessa dagana og búinn að vinna þrjú af síðustu fjórum mótum sem hann hefur tekið þátt í.

Í gærkvöldi vann hann BMW meistaramótið sem er hluti af FedEx-mótaröðinni. Hann endaði mótið á 20 höggum undir pari. Lee Westwood og Phil Mickelson komu næstir á 18 höggum undir pari og Tiger Woods endaði á 17 undir.

Norður-Írinn er því efstur á FedEx-mótaröðinni og er því líklegastur til að vinna stóra pottinn sem er litlar 10 milljónir dollara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×