Brendan Rodgers: Ég er stoltur stjóri eftir þetta kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2012 09:00 Jonjo Shelvey skoraði tvö fyrir Liverpool í gær. Mynd/AFP
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, skipti öllu liði sínu út fyrir Evrópuleikinn á móti svissneska liðinu Young Boys í gær og var mjög sáttur með 5-3 sigur "varaliðsins" í fyrsta leiknum í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Hinn tvítugi Jonjo Shelvey skoraði tvö mörk í leiknum, þá skoraði hinn 19 ára Andre Wisdom í sínum fyrsta leik og þeir Suso, sem er 18 ára, og Oussama Assaidi, sem er 24 ára, fengu líka sín fyrstu tækifæri með aðalliðinu. „Þetta var tækifæri fyrir ungu leikmennina okkar til að spila og sanna sig og ég tel að þeir hafi gert það. Ég sé sem stjóri og allir í félaginu geta verið mjög stolt eftir svona kvöld," sagði Brendan Rodgers. „Auðvitað hefðum við getað varist betur og það er engin vafi að það voru mikil vonbrigði að fá á sig þessi þrjú mörk. Ef við tökum hinsvegar það jákvæða frá þessum leik þá sýndu ungu strákarnir hugrekki og kjark til þess að spila af miklu sjálfstrausti og eldri leikmennirnir héldu hópnum saman og ráku ungu strákana áfram,." sagði „Það var frábært hjá liðinu að spila eins og það gerði og ná að skora þessi fimm mörk," sagði Rodgers og hann hrósaði sérstaklega Jonjo Shelvey sem kom inn á sem varamaður og skoraði tvö mörk. „Hann er búinn að vera meiriháttar. Hann er enn bara 20 ára gamall og er alltaf að bæta sinn leik. Ég tel að hann verði stór leikmaður fyrir Liverpool í framtíðinni," sagði Rodgers.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Sjá meira