Golf

Norman segir að Tiger sé hræddur við McIlroy

Rory McIlroy.
Rory McIlroy.
Kylfingurinn Rory McIlroy er ekkert sérstaklega ánægður með Ástralann Greg Norman sem heldur því fram að McIlroy hræði sjálfan Tiger Woods.

Þeir McIlroy og Tiger eru að fara að berjast um 7 milljón dollara verðlaunapott á FedEx-mótaröðinni um helgina.

McIlroy hló þegar ummælin voru borin undir hann.

"Hvernig á ég að geta hrætt Tiger Woods? Ég meina hann er búinn að vinna eitthvað um 70 PGA-mót, 14 risatitla og er stærsta stjarna íþróttarinnar. Hvernig á 23 ára strákur frá Norður-Írlandi með nokkra sigra í farteskinu að hræða hann? Það er ekki mögulegt," sagði Norður-Írinn.

McIlroy, sem er búinn að vinna þrjú af síðustu fjórum mótum sínum, segist heldur ekki hræðast Woods þó svo hann beri mikla virðingu fyrir honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×