Körfubolti

Jabbar fékk loksins styttuna sína

LA Lakers afhjúpaði í gær glæsilega styttu af goðsögninni Kareem Abdul-Jabbar. Hún mun standa fyrir utan heimavöll Lakers, Staples Center.

Þar er stytta Jabbar í góðum félagsskap Magic Johnson og Jerry West. Jabbar var hundfúll að hafa ekki fengið sína styttu fyrr og reif talsverðan kjaft er Magic fékk sína.

Hinn 65 ára gamli Jabbar var aftur á móti auðmjúkur og kurteis er styttan var afhjúpuð í gær.

Jabbar er stigahæsti leikmaður í sögu NBA með 38,387 stig. Hann var sex sinnum valinn besti leikmaður deidlarinnar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×