Körfubolti

Enn tapar Lakers | Knicks enn ósigrað

Kobe sækir að körfu Spurs í nótt.
Kobe sækir að körfu Spurs í nótt.
Danny Green tryggði San Antonio Spurs nauman sigur á LA Lakers með þriggja stiga körfu níu sekúndum fyrir leikslok. Pau Gasol tók síðasta skot Lakers úr erfiðri stöðu en það dugði ekki til.

Kobe Bryant var stigahæstur á vellinum með 28 stig og var þess utan að skjóta vel. 12 skot af 19 utan af velli fóru niður. Kobe gaf einnig 8 stoðsendingar.

Lakers er 3-5 í vetur en San Antonio 7-1.

Carmelo Anthony skoraði 25 stig og JR Smith 21 er Knicks vann Orlando. Varnarleikur Knicks lagði grunninn að sigrinum en Orlando skoraði aðeins 13 stig í fjórða leikhluta. Knicks er búið að vinna alla fimm leiki sína í vetur og er þetta aðeins í þriðja sinn í sögu félagsins sem slíkur árangur næst.

Úrslit:

Charlotte Bobcats 92 - 76 Washington Wizards

Orlando Magic 89 - 99 New York Knicks

Indiana Pacers 72 - 74 Toronto Raptors

Brooklyn Nets 114 - 101 Cleveland Cavaliers

Sacramento Kings 86 - 103 Portland Trail Blazers

Los Angeles Lakers 82 - 84 San Antonio Spurs



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×