Golf

Rory McIlroy vann í Dubai

SÁP skrifar
Rory McIlroy eftir sigurinn í gær.
Rory McIlroy eftir sigurinn í gær. Mynd. / Getty Images
Norður-Írinn Rory McIlroy sigraði á lokamóti Evrópumótaraðarinnar á árinu í Dubai í dag.

McIlroy vann mótið örugglega og endaði hringina fjóra á 23 höggum undir pari vallarins en Justin Rose lenti í öðru sæti mótsins og Luke Donald var þriðji.

Árið 2012 hefur verið ótrúlegt hjá Norður-Íranum en hann er í efsta sæti heimslistans og eykur forskot sitt enn meira eftir úrslit mótsins, besta ár kylfingsins á ferlinum að baki.

McIlroy bar sigur úr býtum á fimm mótum á árinu þar af eitt risamót þegar hann sigraði á PGA-meistaramótinu í ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×