Golf

Kylfusveinar slógust í Ástralíu

Nittie ásamt hinum skapheita kylfusveini sínum.
Nittie ásamt hinum skapheita kylfusveini sínum.
Kylfusveinar eru venjulega lítillátir og kurteisir á vellinum. Sjá um að halda kylfingum rólegum og eru til fyrirmyndar með sinni hegðun. Á því varð undantekning á opna ástralska mótinu.

Þá slógust kylfusveinar þeirra Marc Leishman og James Nittie rétt áður en fyrsti hringurinn hófst. Þetta var alvöru slagur þar sem hnefarnir fengu að tala. Kylfusveinarnir glímdu svo hraustlega á grasinu. Ekki beint daglegt brauð á golfmótum.

Aðdragandi málsins er sá að þeir voru á spilavíti nokkrum dögum áður þar sem ekki fór vel á með kylfusveinunum. Þeir gerðu út um það mál á golfvellinum.

Ekki er búið að taka ákvarðanir um refsingar fyrir þessa sérstöku uppákomu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×