Golf

Tinna lék fyrsta hringinn á 74 höggum í Marokkó

Tinna Jóhannsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, hóf í gær leik í  úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð kvenna 2013.
Tinna Jóhannsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, hóf í gær leik í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð kvenna 2013. Daníel
Tinna Jóhannsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, hóf í gær leik í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð kvenna 2013. Spilað er í bænum Marrakech í Marokkó. Tinna lék hringinn í gær á 74 höggum, eða 2 höggum yfir pari vallar. 154 keppendur eru skráðir til leiks og er leikið í tveimu riðlum, A og B, og eru 77 í hvorum riðli.

Tinna spilar í B-riðli og er í ráshópi með danska kynskiptingnum Mianne Bagger og Nicole Becker frá Suður-Afríku.

Bagger hefur leikið á Evrópumótaröð kvenna undanfarin ár og reyndi fyrst fyrir sér í úrtökumóti á Tenerife 2005, sama ár og Ólöf María Jónsdóttir komst fyrst íslenskra kvenna inn á Evrópumótaröðina.

Cheyenne Woods, frænka Tigers nokkurs Woods, leikur einnig í B-riðli, líkt og Tinna og var á sama skori og Tinna í gær, 74 höggum.

Tinna tók einnig þátt í úrtökumótinu í fyrra og komst þá inn á lokastigið, en náði ekki að tryggja sér þátttökurétt á mótaröðinni síðasta keppnistímabil.

Hægt er að fylgjast með skorinu í mótinu beint á heimasíðu Evrópumótaraðar kvenna:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×