Viðskiptavinum fjölgar bara og fjölgar í Garðs Apóteki á Sogavegi 15. febrúar 2012 11:00 Haukur Ingason apótekari með fríðum flokki starfskvenna sinna, en glaðlegt viðmót þeirra og einstök þjónustulipurð er rómuð meðal viðskiptavina Garðs Apóteks.mynd/gva
Viðskiptavinum fjölgar bara og fjölgar þótt að við auglýsum ekki mikið. Það kemur til af því að við höfum alltaf komið mjög vel út úr verðkönnunum á lyfjum, hvort sem um er að ræða lyfseðilsskyld lyf eða lyf sem eru seld án lyfseðils,“ segir Haukur Ingason, apótekari í Garðs Apóteki. Hann segir æ fleiri komast að raun um að hægt sé að gera góð kaup á fleiru en lyfjum í Garðs Apóteki. „Margir koma gagngert til að kaupa fæðubótarefni og vítamín sem fást í úrvali, hjúkrunarvörur, snyrtivörur og næringardrykki, því verð er almennt lágt í apótekinu.“ Að sögn Hauks kunna viðskiptavinir því einkar vel að Garðs Apótek sé einkarekið. „Eftir bankahrunið er fólk orðið meðvitaðra um við hvern það verslar og virðist hafa fengið nóg af lyfjakeðjum, hvort sem þær heita Lyf og heilsa, Lyfja, Apótekið, Apótekarinn eða Skipholts Apótek,“ upplýsir Haukur. Í Garðs Apóteki er notalegur kaffikrókur þar sem hægt er að setjast niður með ilmandi kaffi, te eða vatnsglas í boði hússins. „Hverfisbúar koma hingað oft og tíðum og stundum er apótekið eins og hverfismiðstöð þar sem íbúarnir hittast og spjalla saman,“ segir Haukur ánægður. „Við erum í leiðinni fyrir íbúa stærstu hverfa borgarinnar og með tilkomu rafrænna lyfseðla finnst mörgum þægilegt að hringja á undan sér, láta taka til lyfin sín og sækja þau á heimleiðinni upp í Breiðholt, Árbæ eða Grafarvog og nágrannasveitarfélögin Mosfellsbæ, Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð og víðar,“ segir Haukur. Það sem gerir Garðs Apótek að fyrsta vali viðskiptavina er þó fyrst og fremst fyrirmyndarþjónusta og hlýlegt viðmót starfsfólksins, í kaupauka við lága verðið. „Nýverið jukum við þjónustu í kringum stómavörur og þvagleggi, og nú geta þeir sem nota slíkar vörur snúið sér til okkar og fengið þær afhentar í apótekinu eða sendar heim til sín, hvert á land sem er,“ segir Haukur og bætir við: „Svo eru alltaf einhverjir sem segjast koma bara af því að hér starfi flottustu afgreiðslustúlkur bæjarins, en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það; eins og svo margt annað,“ segir Haukur og brosir. Garðs Apótek er á horni Sogavegs og Réttarholtsvegs, við brúna yfir Miklubraut. Sími 5680990. Opið er virka daga frá kl. 9-18 en lokað um helgar. Sjá nánar á www.gardsapotek.is.
Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira