Golf

Masters 2012: Ofurparið Wozniacki og McIlroy

Caroline Wozniacki frá Danmörku og Rory McIlroy vekja ávallt mikla athygli hvar sem þau koma.
Caroline Wozniacki frá Danmörku og Rory McIlroy vekja ávallt mikla athygli hvar sem þau koma.
Það eru ekki bara kylfingarnir sjálfir sem vekja eftirtekt heimspressunnar. Talsvert er skrifað og skrafað um eiginkonur kylfinganna. Skemmst er að minnast þess áhuga sem Elin Nordegren, fyrrverandi eiginkona Tigers Woods, vakti á hliðarlínunni þegar Woods var að keppa.

Woods ku hafa verið lítið hrifinn af athyglinni sem eiginkonan fékk.

Caroline Wozniacki er trúlega þekktust þeirra eiginkvenna sem mæta til leiks nú um helgina, en hún er einn fremsti tennisleikari heims um þessar mundir. Hún er kærasta kylfingsins knáa, Rory McIlroy, og verður því eflaust á hliðarlínunni þegar hann freistar þess að næla sér í græna jakkann nú um helgina.

Wozniacki er af pólsku bergi brotin en er fædd og uppalin í Danmörku. Hún sat í efsta sæti heimslistans í tennis í alls 67 vikur samfleytt, allt fram til janúar síðastliðins. Þau Wozniacki og McIlroy eru því sannkallað ofurpar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×