„Hugmyndafræði okkar gengur út á að veita persónulega og mikla þjónustu. Við köllum hana „toppþjónustu fasteignasölunnar TORGS" og það hefur skilað sér undanfarin ár. Allir fasteignasalar okkar og sölufulltrúar starfa eftir sérstöku lykilkúnnakerfi okkar þar sem hver og einn sér alfarið um samskipti við kaupendur og seljendur vegna ákveðinnar fasteignar."
Hafdís nefnir sem dæmi um góða þjónustu fasteignasölunnar að starfsmenn sjái alltaf sjálfir um að sýna eignir seljenda. „Við segjum oft að seljendur geti verið í vinnunni sinni á meðan við erum í okkar vinnu. Allir sem skoða íbúðir hjá okkur fá sérstaka eignamöppu sem inniheldur allar nauðsynlegar upplýsingar um viðkomandi fasteign en ekki síður gagnlegar upplýsingar um hverfið."
Þar á Hafdís helst við upplýsingar um grunn- og leikskóla, verslanir, strætóstöðvar og fleira. „Við leggjum mikla áherslu á að leysa þessi litlu atriði sem virka oft sem þröskuldur í íbúðarkaupum, því þótt áhugasamir kaupendur búi á höfuðborgarsvæðinu er ekki þar með sagt að þeir þekki öll hverfin vel. Það skiptir til dæmis mjög miklu máli fyrir fólk með ung börn hvar skólar eru staðsettir og samgöngur til og frá þeim."
Mikill vöxtur

Starfsmenn Torgs vinna eftir svokölluðu lykilkúnnakerfi eins og fyrr segir. Það þýðir að sami starfsmaður sér um öll málefni tiltekinnar fasteignar. Í því felst að starfsmaður stofunnar sér um að sýna eignina, vera í sambandi síðar meir við þá sem skoða hana og vinna með seljanda og kaupanda þegar tilboð berst.
„Þetta er óneitanlega mikill kostur fyrir seljandann og ekki síður fyrir þá sem skoða íbúðina. Þá er sami starfsmaður okkar með öll svör á reiðum höndum og getur klárað öll mál, stór sem smá, fyrir bæði kaupendur og seljendur," segir Hafdís.
Allir meðvitaðir um góða þjónustu

„Allir starfsmenn setja sér markmið fyrir árið. Síðan vinnum við viku- og mánaðarleg markmið líka og öll miðast þau út frá grunngildum okkar sem eru kraftur, traust og árangur."