Golf

Held markmiðum sumarsins fyrir sjálfa mig

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Guðrún Brá verður væntanlega öflug á mótum sumarsins.fréttablaðið/gva
Guðrún Brá verður væntanlega öflug á mótum sumarsins.fréttablaðið/gva
„Það verður nóg að gera í sumar og þetta verður spennandi ár," sagði Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG en ætlar að vera með á fyrsta mótinu á Eimskipsmótaröðinni sem hefst í dag á Hólmsvelli í Leiru.

Birgir, sem hefur fjórum sinnum fagnað sigri á Íslandsmótinu í höggleik mun leggja höfuðáherslu á mótin sem honum standa til boða á áskorendamótaröð Evrópu, sem er næst sterkasta atvinnumótaröðin í Evrópu.

„Með því að skrá mig í mótið er ég að koma mér í keppniseinbeitinguna sem hefur aðeins skort upp á. Það verður markmiðið að fara í Keflavík og halda einbeitingunni þrátt fyrir að veðrið verði kannski brjálað," sagði Birgir Leifur Hafþórsson.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili í Hafnarfirði er á meðal bestu kylfinga landsins og hún byrjaði keppnistímabilið með miklum látum um s.l. helgi á unglingamótaröð Arion banka. Guðrún, sem er 18 ára, setti nýtt vallarmet á Garðavelli á Akranesi þar sem hún lék á 66 höggum eða 6 höggum undir pari. Guðrún er til alls líkleg á Eimskipsmótaröðinni í sumar en hún er á meðal keppenda á Hólmsvelli í Leiru um helgina.

„Ég er með skýr markmið fyrir sumarið en ég ætla að halda þeim fyrir mig. Ég ætla að reyna að halda þeirri forgjöf sem ég er með í dag. Það hefur verið markmið að komast niður fyrir 0 í forgjöf. Það gekk nánast allt upp á hringnum á Garðavelli þar sem ég setti vallarmetið," sagði Guðrún Brá en hún sigraði á fyrsta stigamóti ársins í fyrra.

Alls eru 113 kylfingar skráðir til leiks í karlaflokknum og 26 í kvennaflokknum. Sú nýbreytni verður á Eimskipsmótaröðinni í sumar að öll höggleiksmótin verða 54 holur og verður keppendum fækkað að loknum öðrum keppnisdegi. Þessi breyting er gerð til þess að mótin telji til stiga á heimslista áhugakylfinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×