Veflausnir sem auka árangur fyrirtækja 31. maí 2012 17:00 Stöðufundur með Siggu Lund og Birni markaðsstjóra þar sem verið er að fara yfir næstu skref í þróun vefsvæðisins siggalund.is en stöðug þróun vefs er lykillinn að árangri. mynd/vilhelm gunnarsson
Vefsíðufyrirtækið Allra Átta býður upp á úrval lausna á sviði internetráðgjafar, veflausna og grafískrar hönnunar. Björn Jóhannsson, markaðsstjóri Allra átta, segir að ýmsu þurfi að huga að við hönnun og rekstur góðs vefs. „Þarfagreining og stefnumótun fyrir vefinn er jafn mikilvæg og vefurinn sjálfur. Huga þarf að því hver markhópurinn er og hvernig hann og fyrirtækið geta átt í samskiptum gegnum vefinn. Einnig þarf að huga vel að leitarvélabestun, líftíma vefsins og samfélagsmiðlum svo eitthvað sé nefnt."Leitarvélar skipta máli Miklu máli skiptir að fá jákvæðar niðurstöður úr leitarvélum, t.d. Google. Þá þarf að hafa nokkra þætti í huga segir Björn. Huga þarf vel að textanum á síðunni, undirsíðum og fyrirsögnum. „Hér skiptir val á leitarorðum öllu máli. Fyrst þarf að velja þau leitarorð sem skipta mestu máli fyrir fyrirtækið, vöruna og atvinnugreinina. Síðan eru þau keyrð gegnum greiningartæki Google sem segir þér hversu oft hverju orði var slegið upp í leitarvélinni. Í framhaldinu eru þau orð notuð mest í texta síðunnar sem oftast er leitað að." Björn segir slík vinnubrögð eiga almennt við um þá aðila sem vilja eiga viðskipti gegnum vefinn. „Sem dæmi skiptir þetta netverslanir miklu máli og þá aðila sem veita þjónustu gegnum vefinn, til dæmis ferðaþjónustufyrirtæki."Snjallsímar og spjaldtölvur breyttu miklu Vefhönnun hefur breyst mikið með tilkomu snjallsímans og spjaldtölvunnar. Björn segir að á tveimur árum séu flestir vefir orðnir úreltir að einhverju leyti. „Margir eldri vefir fyrirtækja og stofnana sjást illa í snjallsímum og spjaldtölvum. Þótt hægt sé að útbúa sérvefi fyrir snjallsíma og spjaldtölvur er þróunin sú að hönnunin gangi í allar tegundir tölva og síma." Björn nefnir að forsíður vefja hafi þróast þannig að þær séu lengri og stærri. „Notendur eru frekar tilbúnir til að skrolla niður síðuna, en að fara endalaust af einni undirsíðu yfir á aðra. Þessa þróun má meðal annars sjá á fréttavefjum hérlendis. Það sem gerðist á undan þessari þróun var tilkoma skrolltakkans á tölvumúsinni. Þannig að í dag notar fólk snjallsíma, spjaldtölvur og venjulegar tölvur á svipaðan hátt." Þessi þáttur skiptir æ meira máli enda eykst notkun slíkra tækja ár frá ári. Björn nefnir sem dæmi að stór hluti hótelpantana í Bandaríkjunum fari fram gegnum snjallsíma.Breytingar á útliti Endingartími útlits og viðmót vefs er frá tveimur upp í fimm ár að sögn Björns. Þá skiptir máli í hvaða atvinnugrein fyrirtækið er. Best er að vinna efnið stöðugt og gera breytingar á útliti á nokkurra ára fresti. „Ég mundi segja að þeir sem vilja ná árangri á netinu þurfi að gera reglulegar breytingar á innihaldi texta og mynda. Það skiptir máli fyrir leitarvélar en einnig fyrir viðskiptavini sem koma frekar aftur á vefinn. Hvað varðar útlit vefs er hægt að gera lágmarksbreytingar á nokkurra ára fresti."
Mest lesið Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Fleiri fréttir Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent