Vodafone hækkaði á fyrsta degi 19. desember 2012 06:00 Skráning Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, og Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone, við upphaf viðskipta í gærmorgun. fréttablaðið/gva
Hlutabréf í Vodafone voru tekin til viðskipta í Kauphöll Íslands í gærmorgun. Skráningargengi bréfanna var 31,5 krónur á hlut en í lok dags hafði gengið hækkað í 32,2 krónur á hlut í 162 milljóna króna viðskiptum. Alls hækkaði gengi bréfanna því um 2,2 prósent á fyrsta degi viðskipta. Miðað við gengið í lok dags í gær er markaðsvirði Vodafone um 10,8 milljarðar króna. Vodafone hefur undanfarin misseri verið að mestu í eigu Framtakssjóðs Íslands (FSÍ). Sjóðurinn seldi sextíu prósenta hlut í félaginu í útboði í byrjun desembermánaðar. FSÍ er enn stærsti einstaki eigandi Vodafone með 19,7 prósenta hlut. Lífeyrissjóður verslunarmanna kemur þar á eftir með 12,3 prósent og Ursus ehf., félag í eigu Heiðars Más Guðjónssonar, er þriðji stærsti eigandinn með 4,7 prósenta hlut. Í tilkynningu til Kauphallar er haft eftir Ómari Svavarssyni, forstjóra Vodafone, að með skráningu félagsins hafi ný atvinnugrein bæst við á hlutabréfamarkaðinn. „Skráningarferlið hefur á undanförnum mánuðum verið bæði krefjandi og gagnlegt. Við höfum velt við hverjum steini í rekstrinum og hlökkum til verunnar á hlutabréfamarkaðnum."- þsj
Fréttir Mest lesið Foreldrar sextíu barna vilji leikskólastjórann burt Innlent Hús varð fyrir tjóni vegna eldingar Innlent Fimm ára leyfi frá borginni til að fara á þing Innlent Lögbann sett á tilskipun Trumps Erlent Farinn af vettvangi en fannst með áverka stuttu síðar Innlent „Við erum algjörlega komin á endastöð“ Innlent Rauðar viðvaranir vegna Éowyn Erlent Írar undirbúa sig fyrir mesta óveður í manna minnum Erlent Mikið reiðarslag fyrir réttindi bandarískra borgara Erlent Viss um sigurinn en óviss um að komast inn á landsfundinn Innlent Fleiri fréttir Óttast að íbúar utan Reykjavíkur festist í gistiskýlunum Fimm ára leyfi frá borginni til að fara á þing Foreldrar sextíu barna vilji leikskólastjórann burt Farinn af vettvangi en fannst með áverka stuttu síðar Hús varð fyrir tjóni vegna eldingar Viss um sigurinn en óviss um að komast inn á landsfundinn „Við erum algjörlega komin á endastöð“ „Enn einn áfellisdómurinn yfir stjórnsýslu borgarinnar“ Staðfestir niðurfellingu rannsóknar á blaðamönnunum Áfellisdómur á stjórnsýslu borgarinnar og meintur fjárdráttur Að minnsta kosti þrettán milljónir og „einbeittur brotavilji“ Fleiri skora á Guðrúnu Þau munu vinna úr hagræðingartillögunum Skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita dreng í sturtuklefa Borgarstjóri vill ekki mikinn fjölda hælisleitenda í JL húsið Frestur til að skila inn tillögum rennur út í dag Fíkniefni í bala og milljónir í skúffu Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Vél frá Dubai lenti í Keflavík með veikan farþega Dæmdur fyrir höfuðhögg sem leiddi til dauða Ítreka að næringarráðleggingar fela ekki í sér boð og bönn Sjálfstæðisfélög skora á Guðrúnu Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Ætla að kæra Sindra Þór fyrir áralangan fjárdrátt „Lausa skrúfan“ seld á Akureyri Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Foreldrar stefna Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða „Draumahúsið“ sem hefði getað sparað stórfé Sindri grunaður um fjárdrátt Hælisleitendur fá ekki inni í JL eftir allt saman Sjá meira