Downton Abbey hefur áhrif á nýríkt fólk 2. janúar 2013 14:30 Aukin eftirspurn er eftir ráðsmönnum og þjónustufólki í Bretlandi og víðar vegna þáttanna.
Sjónvarpsþættirnir Downton Abbey hafa heldur betur slegið í gegn um allan heim, þar á meðal hér á landi. Breski leikarinn, Hugh Bonneville, hefur vakið heimsathygli fyrir leik sinn í þáttunum þar sem hann þykir sýna mikla snilldartakta. Hann var áður þekktur úr kvikmyndunum Notting Hill og Gosford Park og ýmsum sjónvarpsþáttum en sagt er að Downton Abbey hafi gjörbreytt lífi hans. Myndaflokkurinn, sem hefst um það leyti sem fyrri heimsstyrjöldin er að hefjast, segir frá Crawley-fjölskyldunni og þjónustufólki hennar. Bonneville hefur látið hafa eftir sér í viðtölum að þættirnir höfði mjög til hans. "Ég féll fyrir handritinu frá fyrstu stundu og fannst það áhugavert. Ég átti hins vegar ekki von á þessum gífurlegu vinsældum," segir hann. Bonneville fer með eitt aðalhlutverkið, hlutverk jarlsins Robert Crawley. Þættirnir hafa fengið eftirsótt verðlaun á borð við Golden Globe og Emmy auk margra annarra. Þættirnir hófu göngu sína á ITV-stöðinni í september 2010 en nú er verið að sýna þriðju þáttaröðina. Höfundur er sir Julian Fellowes og nýlega var ákveðið að hefja upptökur á fjórðu þáttaröðinni. Highclere-kastali í Hampshire var notaður í tökur bæði utan- og innandyra þótt einstaka atriði séu tekin upp í stúdíói. Bonneville segir að kastalinn sé ekki síður mikilvægur en leikararnir. "Þegar maður gengur inn er upplifunin eins og að ganga inn í breska menningarsögu," segir leikarinn. Bærinn Bampton í Oxford-héraði var notaður í tökur utandyra. Margir þekktir leikarar koma við sögu og meðal þeirra er Maggie Smith. Hún hefur þó óskað eftir að verða skrifuð út úr sögunni. Downton Abbey hefur verið líkt við aðra svipaða þáttaröð, Húsbændur og hjú, sem sýnd var hér á landi á áttunda áratugnum. Þættirnir hafa haft mikil áhrif á ýmsa þætti nútímasamfélags, meðal annars á tísku. Fyrirtæki í Bretlandi sem sér fólki fyrir þjónum og húshjálp finnur mikla aukningu á eftirspurn hjá efnameira fólki eftir ekta breskum bryta. Um 430 breskir brytar hafa fengið vinnu á árinu í gegnum umboðsskrifstofuna Bespoke Bureau. Framkvæmdastjórinn sagði við The Daily Mail að nýríkar fjölskyldur í Kína, Rússlandi og Miðausturlöndum væru töluvert að sækjast eftir ráðsmönnum. Þótt Hugh Bonneville hafi öðlast frægð fyrir lögu þá hefur hún margfaldast með Downton Abbey.
Golden Globes Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira