Fótbolti

Fyrsta tap Barcelona í vetur

Barcelona tapaði, 3-2, mjög óvænt í kvöld gegn Real Sociedad. Þetta var fyrsta tap Barcelona í spænsku deildinni í vetur.

Barcelona komst snemma í 2-0 en heimamenn minnkuðu muninn fyrir hlé. Gerard Pique var svo rekinn af velli snemma í síðari hálfleik og það breytti leiknum ansi mikið.

Heimamenn jöfnuðu leikinn er tæpur hálftími lifði leiks og Imanol Agirretxe skoraði svo sigurmarkið í uppbótartíma. Ótrúlegur sigur hjá heimamönnum sem fögnuðu vel og lengi.

Þrátt fyrir tapið er Barcelona með 11 stiga forskot á toppi deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×