Körfubolti

Garnett vill klára ferilinn hjá Boston

Garnett fagnar með Paul Pierce.
Garnett fagnar með Paul Pierce.
Það hefur verið talsvert talað um að Boston ætli sér að skipta út þeim Kevin Garnett og Paul Pierce. Danny Ainge, yfirmaður íþróttamála hjá Boston, þvertekur fyrir það.

"Ég held mér sé óhætt að slá því föstu að þeir séu ekki að fara neitt. Það er mjög lítið til í því sem hefur verið skrifað um upp á síðkastið," sagði Ainge.

Garnett sjálfur hefur engan áhuga á því að fara frá Boston og vill klára ferilinn þar.

"Ég elska að spila hérna og veit ekki hver er að búa það til að ég sé á förum. Ég er með grænt blóð í æðum og það verður þannig áfram. Ef ég ræð einhverju mun ég klára minn feril hér."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×