ESB rannsakar ríkisstuðning við FIH bankann í Danmörku 6. febrúar 2013 08:31
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gert alvarlegar athugasemdir við hvernig dönsk stjórnvöld ákváðu að bjarga FIH bankanum frá hruni á síðasta ári. Framkvæmdastjórnin hefur fyrirskipað rannsókn á málinu í heild og er sú rannsókn þegar hafin. Það sem dönsk stjórnvöld gerðu í gegnum svokallaðan Bankpakke 5 var að færa ónýt fasteignalán FIH frá bankanum og yfir í umsjón Bankaumsýslu danska ríkisins. Um var að ræða lán upp á 17 milljarða danskra króna að nafnvirði. Framkvæmdastjórnin telur að þessi ráðstöfun hafi m.a. brotið gegn samkeppnisreglum Evrópusambandsins, að því er segir í frétt á vefsíðunni business.dk. Einnig telur Framkvæmdastjórnin að reglur um ríkisstyrki hafi verið brotnar og vill fá svar við spurningunni um hvort helstu eigendur FIH hafi komið nægilega mikið að björguninni með eigið fé. Eigendurnir eru að stærstum hluta lífeyrissjóðirnir ATP og PFA. Eins og oft hefur komið frá áður eru endurgreiðslur á rúmlega helmingi af því verði sem Seðlabanki Íslands fékk fyrir FIH bankann árið 2010 háðar gengi bankans fram á næsta ár.
Mest lesið Bein útsending: Heinemann sviptir hulunni af breytingum á fríhöfninni Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Atvinnulíf Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Samstarf Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Fleiri fréttir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira