Golf

Mickelson fer á kostum í Phoenix

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mickelson er í miklum metum hjá áhorfendum í Phoenix.
Mickelson er í miklum metum hjá áhorfendum í Phoenix. Mynd/AP
Phil Mickelson hefur átt frábæra helgi á Phoenix Open PGA-mótinu í golfi sem nú stendur yfir. Hann er með sex högga forystu fyrir lokadaginn.

Mickelson náði fimm fuglum á síðustu sex holum sínum í gær og kom í hús á aðeins 64 höggum. Hann hefur spilað fyrstu þrjá hringina á 189 höggum og er aðeins einu höggi frá lægsta skori sem náðst hefur á PGA-móti eftir 54 holur.

Hann á því möguleika á að bæta metið á lokahringnum í dag en hann segir að fyrsta mál á dagskrá sé að vinna mótið - sem yrði 41. PGA-titill hans á ferlinum.

„Ég ætla fyrst og fremst að reyna að vinna mótið. Ég ætla ekki að hafa of miklar áhyggjur af metum og öðru slíku," sagði Mickelson.

Brandt Snedeker átti heldur ekki slæman dag og kom í hús á 65 höggum. Hann er í öðru sæti á átján höggum undir pari. Padraig Harrington er þriðji en hann spilaði best allra í gær, á 63 höggum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×