Chris Paul besti maður stjörnuleiksins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. febrúar 2013 09:00 Chris Paul í leiknum í nótt. Mynd/AP
Vestrið hafði betur í Stjörnuleik NBA-deildarinnar sem fór fram í nótt, 143-138. Chris Paul, leikstjórnandi LA Clippers, var valinn maður leiksins. Paul skoraði 20 stig í leiknum og nýtti alls sjö af tíu skotum sínum. Hann gaf einnig fimmtán stoðsendingar og stal boltanum fjórum sinnum, þrátt fyrir að hafa spilað í aðeins 27 mínútur. Paul var sérstaklega öflugur í fjórða leikhluta en þá skoraði hann níu stig. Kevin Durant, maður stjörnuleiksins í fyrra, var stigahæsti leikmaður leiksins með 30 stig en þetta er í þriðja sinn í röð sem hann skorar minnst 30 stig í stjörnuleiknum. Margar aðrar stórstjörnur tóku þátt í leiknum - eins og Kobe Bryant (níu stig, átta stoðsendingar), LeBron James 19 stig, fimm stoðsendingar) og Dwayne Wade (21 stig, sjö stoðsendingar). James lofaði Paul eftir leikinn. „Hann er ótrúlegur. Hann er einn besti leikmaður deildarinnar og besti leikstjórnandinn sem við eigum. Það kemur mér ekki á óvart hvað hann gerði í þessum leik." Paul fékk átta atkvæði af tólf sem maður leiksins, Bryant tvö og þeir James og Durant eitt hvor.
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira