Körfubolti

Eigandi Lakers glímir við krabbamein

Buss er hér í góðum félagsskap Paulu Abdul, Magic Johnson og Snoop Dogg er hann fékk stjörnu á Hollywood Walk of Fame.
Buss er hér í góðum félagsskap Paulu Abdul, Magic Johnson og Snoop Dogg er hann fékk stjörnu á Hollywood Walk of Fame.
Heilsufar eiganda LA Lakers, Jerry Buss, er ekki gott en hann liggur nú inn á gjörgæsludeild á spítala í Los Angeles. Buss er að glíma við krabbamein.

Buss er orðinn 79 ára gamall og hefur meðal annars fengið heimsóknir frá Kobe Bryant og Magic Johnson. Nánari upplýsingar um heilsufar Buss verða ekki gefnar út að ósk fjölskyldunnar.

Buss hefur þurft að liggja talsvert inn á spítala undanfarin ár vegna veikinda. Hann fékk meðal annars blóðtappa í fótinn í desember árið 2011.

Hann keypti Lakers árið 1979 og hann keypti einnig íshokkýliðið LA Kings. Hann festi einnig kaup á Forum-höllinni sálugu þar sem Lakers lék lengi vel.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×