Íslandi betur borgið utan ESB Þorbjörn Þórðarson. skrifar 23. febrúar 2013 12:05
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins telur að hagsmunum Íslands sé betur borgið með því að standa fyrir utan Evrópusambandið. Í drögum að ályktun landsfundar um utanríkismál kemur fram að gera skuli hlé á aðildarviðræðunum við sambandið og þær ekki hafnar að nýju nema það verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins um Evrópumál gæti haft þýðingu þegar hugsanleg stjórnarmyndun verður í kortunum að loknum alþingiskosningum hinn 27. apríl næstkomandi. Þetta gæti skipt máli þegar metið er hvaða flokkum Sjálfstæðisflokkurinn getur starfað eftir kosningar. Sem kunnugt er hefur Samfylkingin ekki gefið neinn afslátt á þeirri afstöðu að klára beri viðræðurnar við sambandið og að aðildarsamningur verði síðan borinn undir þjóðaratkvæði. Í stjórnmálaályktun síðasta landsfundar Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2011 ályktaði landsfundur að gera skyldi hlé á aðildarviðræðum við Evrópusambandið og þær ekki hafnar að nýju nema það yrði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í drögum að ályktun landsfundar um utanríkismál fyrir landsfund sem nú stendur yfir kveður við svipaðan tón. En þar segir: Landsfundur telur að hagsmunum Íslands sé betur borgið með því að standa fyrir utan Evrópusambandið. Áréttað er að gera skuli hlé á aðildarviðræðum við Evrópusambandið og þær ekki hafnar að nýju nema það verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Kosningar 2013 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira