Bikarmeistararnir mæta á Ásvelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2013 13:45 Keflavíkurkonur fagna hér bikarsigrinum um síðustu helgi. Mynd/Daníel
Dominos-deild kvenna fer aftur af stað í kvöld eftir smá hlé vegna bikarúrslitanna og verður þá heil umferð spiluð. Þetta er 22. umferðin af 28 í deildinni. Nýkrýndir bikarmeistarar Keflavíkur heimsækja Hauka í Schenkerhöllina á Ásvöllum. Keflavík hefur ekki tapað útileik í deild eða bikar á tímabilinu en fyrsta deildartap liðsins í vetur kom einmitt á móti Haukum í síðasta leik liðanna sem fram fór í Keflavík í janúar. Silfurlið Vals tekur á móti Snæfelli í Vodafonehöllinni á Hlíðarenda en þetta er fyrst leikur liðanna síðan að Snæfell kærði sigur Vals í Hólminum í byrjun ársins en sá leikur var dæmdur Snæfelli í vil 20-0. KR-konur hafa unnið fjóra leiki í röð með hina frábæru Shannon McCallum í fararbroddi en hún er með 42,5 stig að meðaltali í þessum fjórum sigurleikjum. KR tekur á móti Grindavík í DHL-höllinni í Frostaskjóli í kvöld. Lokaleikur kvöldsins er síðan á milli Fjölnis og Njarðvíkur í Dalhúsum í Grafarvogi en tækifæri Fjölnis til að bæta stöðu sína á botninum fer nú fækkandi. Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15.
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Fleiri fréttir Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Sjá meira