Gunnar rekinn frá KR Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. mars 2013 20:23 Gunnar Sverrisson. Mynd/Daníel
Gunnar Sverrisson, aðstoðarþjálfari körfuboltaliðs KR, var í dag látinn fara frá félaginu. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari kvennaliðs KR, mun taka við daglegri þjálfun liðsins. Helgi Magnússon var í sumar ráðinn aðalþjálfari KR og hefur hann gegnt því starfi samhliða því að spila með liðinu. Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, sagði í samtali við Vísi að Finnur Freyr muni nú taka við daglegri þjálfun liðsins og stjórnun í leikjum. „Samstarf Helga og Gunnars gekk ekki upp því það eru ár og dagar síðan að KR hefur verið í svo slæmri stöðu í deildinni þegar þrjár umferðir eru eftir," sagði Böðvar en KR hefur unnið tíu leiki af nítján og er í sjötta sæti deildarinnar. Finnur Freyr mun nú stýra daglegum æfingum ásamt Helga og stjórna svo leikjum liðsins. Helgi verður sem fyrr aðalþjálfari liðsins. „En í leikjunum þarf Helgi að einbeita sér 100 prósent að því að vera leikmaður liðsins," sagði Böðvar. Hann segir það leiðinlegt að þurfa að skilja við Gunnar. „Hann er toppmaður en þetta var bara því miður ekki að ganga upp. Félagið er stærra en einstaklingurinn og stundum þarf að taka slíkar ákvarðanir."
Dominos-deild karla Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti ÍA-Stjarnan 5-1: Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Íslenski boltinn Lokadagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Íslendingarnir? Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Kvenkyns dómari slasaðist í slagsmálum í vináttuleik Fótbolti Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fleiri fréttir Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Sjá meira