Körfubolti

Kobe lamdi á Úlfunum

LA Lakers sýndi meiðslum hrjáðu liði Minnesota Timberwolves enga miskunn í leik liðanna í NBA-deildinni í nótt.

Lakers raðaði niður þriggja stiga skotum í leiknum. Hittu úr 16 af 32 þriggja stiga sínum. Það er einni þriggja stiga körfu frá félagsmeti. Það sem meira er þá var þetta sigurleikur númer 21 í röð gegn Úlfunum en það er lengsta sigurganga liðs í deildinni um þessar mundir.

Kobe Bryant skoraði 33 stig fyrir Lakers en þetta er í 24. skiptið sem hann fer yfir 30 stig í vetur. Hann og Kevin Durant hafa oftast farið yfir 30 stigin í vetur.

Úrslit:

Indiana-LA Clippers 91-99

Chicago-Philadelphia 93-82

LA Lakers-Minnesota 116-94





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×